Hér munu helstu fregnir um Sindra koma fram. Þessi undirsíða er í anda þeirra gömlu sem Björn Pálsson hafði haldið uppi á sínum tíma.

8. maí 2009 – NÝTT

Július Freyr Valgeirsson og Heiðar Kristinn Rúnarsson munu spila með Sindra í sumar þó svo að þeir verði báðir staddir í Reykjavík yfir sumarið sökum vinnu. Báðir munu þá líklega fljúga í leikina á Sindravelli og spila þá auðvitað þá leiki sem Sindramenn eiga í Reykjavík og annarsstaðar á Suðurlandinu.

Hjalti Vignisson mun spila með liði Sindra í sumar en þessi baráttuglaði og reynslumikli miðjumaður hefur spilað marga leiki með Sindra í gegnum tíðina en eins og flestir ef ekki allir ættu að vita að þá er Hjalti bæjarstjóri á Höfn og hefur síðustu ár þurft að draga sig frá fótboltanum en mun að öllum líkindum koma sterkur inn í sumarið fyrir Sindramenn enda reynslumikill leikmaður.

Sindramenn spila líklega sinn síðasta æfingaleik fyrir fyrsta leik í 3. deildinni  á laugardaginn 9. maí í Fífunni gegn Augnablik sem einnig spilar í 3. deild í sumar. Talið er þó að það verði einn æfingaleikur spilaður á Höfn rétt fyrir fyrsta leik Sindramanna gegn Létti á Sindravöllum fimmtudaginn 21. maí næstkomandi.

Alex Freyr Hilmarsson hefur skrifað undir uppeldissamning við Knattspyrnudeild Sindra. Alex þykir einn af efnilegustu leikmönnum sem hafa komið úr röðum yngri flokka Sindra. Alex er þó aðeins 15. ára gamall en gæti reynst Sindramönnum mikilvægur í sumar. Hann hefur spilað alla leiki með Sindri í deildabikarnum hingað til og komið nokkuð á óvart.

13. júli 2008 -

Seval Zahirovic sem meiddist nýlega á hné mun fara í myndun á næstu dögum og talið er að hann þurfi á aðgerð að halda. Þetta er mikill missir fyrir Sindraliðið en hann er búinn að vera lykilmaður í liðinu í sumar. Talið er að hann gæti verið frá út tímabilið en hann sækist eftir að fara í aðgerðina í Króatíu.

Sindramenn hafa nú gert tvö jafntefli í röð og liggur liðið í svokallaðri lægð segir þjálfari liðsins Hajrudin Cardaklija.

Möguleikar Sindra á að fá liðstyrk þegar leikmannaglugginn opnar aftur 15. júli eru litlir.

Júliu Freyr Valgeirsson meiddist í leiknum gegn Spyrni og gæti verið frá næstu daga. Hann þó líklega koma inn í liðið aftur næsta laugardag gegn Dalvík/Reyni.

Skemmtigt er að segja frá þvi að Kristinn “Krilli Krútt” Þór Guðlaugsson hefur skorað í öllum leikjum frá áramótum nema einum og hefur hann verið í frábæru formi í sumar, 6 mörk í 6 leikjum.

10. júni 2008

Einar Smári Þorsteinsson sem hefur verið fjarverandi í liði Sindra vegna meiðsla mun líklega koma aftur inn í liðið í bikarleiknum gegn Reyni Sandgerði 18. júni næstkomandi. Einar hefur átt við erfið meiðsli að stríða síðustu mánuði og vonandi verður hann búinn að hrista af sér meiðslin fyrir komandi átök.

Denis Cardaklija hefur náð sér af erfiðum veikindum og verður því tilbúinn fyrir erfiða útleikinn gegn Dalvík/Reyni næsta laugardag. Hann missti af leik liðsins gegn Spyrni í deildinni síðasta föstudag.

Þjálfari liðsins, Hajrudin Cardaklija hefur gefið það til kynna að hann muni reyna að fá einn leikmann til liðsins þegar að félagsskiptaglugginn opnar aftur 15. júli næstkomandi. Þykir líklegt að hann styrki liðið varnalega og reyni að fá miðvörð.

Það er þétt prógram hjá Sindramönnum næstu vikuna. Þeir ferðast langa leið á Dalvík á laugardag og fara síðan til Sandgerðis og mæta Reyni í 32 liða úrslitum VIsa-bikarsins. Næsti heimaleikur er 21. júni gegn Huginn.

Sigfinni Björnssyni hefur verið gefið viðurnefnið “ávaxtakakan”.

10. maí 2008

Nýjasti leikmaður Sindra, Tadej Venta kemur til landsins á sunnudaginn og mun því spila sinn fyrsta leik með Sindra á móti Reyni Sandgerði í Sandgerði. Þetta verður fyrsti leikur Sindra á grasi á þessu ári.

Hajrudin Cardaklija þjálfari hefur gefið það út að hann ætli að bæta við einum leikmanni í viðbót fyrir sumarið en þá verða komnir fjórir nýjir til liðs við Sindra. Þykir líklegt að hann sé að leita að öðrum miðverði frá annaðhvort Króatíu og Slóveníu.

Reynt verður að fá æfingaleik á Hornafirði 24. maí en það er viku fyrir fyrsta leik liðsins í deildinni. Líklegt verður að lið að austan komi og spili við Sindramenn á Hornafirði.

28. apríl 2008 –

Nýji leikmaður Sindra, Emir Murtic er kominn til landsins og mun því spila sinn fyrsta leik fyrir félagið næsta laugardaginn á móti KFS í síðasta leik liðsins í Lengjubikarnum.

Fyrsti leikur Sindra í deildinni er á útivelli gegn Leikni F. en fyrsti heimaleikurinn á nýja Sindravellinum verður í bikarnum á móti sama liði.

Hajrudin Cardaklija, þjálfari Sindra hefur komið upp sektakerfi fyrir sumarið. Ráðinn verður sektastjóri og aðstoðarmaður hans. Sektir geta verið allt frá mætingu of seint á æfingar til vitlausar klæðnaðar á æfingum (aðeins Sindra-æfingaföt).

Eins og hefur komið fram má búast við fleiri nýjum leikmönnum fyrir sumarið. Sindri eru í viðræðum við að fá einn útlending í viðbót og tvo unga íslenska leikmenn.

17. apríl 2008 -

Talið er að Sindramenn muni fá góðan liðstyrk frá Stjörnunni í sumar, en þrír leikmenn liðsins eru orðaðir við Sindra, þeir Rögnvaldur Már Helgason, Stefán Daníel Jónsson og Grétar Atli Grétarsson.

Einnig þykir mjög líklegt að með Emir Murtic, nýja leikmanni Sindra komi annar leikmaður, en það er 25 ára gamall Slóveni sem spilar sem miðvörður.

Óvist er hvort Atli Haraldsson spili með liðinu í sumar, en eins og flestir vita þá hefur hann gert félagsskipti í Fjölni. Þó þykir það líklegt að hann snúi heim í sumar og spili með liðinu.

Svo gæti verið að Egill “Gillz” Einarsson og Auðunn Blöndal spili gegn Sindra á sunnudaginn í deildabikarnum og hvetjum flesta að kíkja á þann leik, leikurinn verður spilaður á Stjörnuvelli og byrjar kl. 14.00 !

04. apríl 2008 –

Hajrudin Cardaklija hefur snúið aftur til landsins eftir 3 vikna ferðalag til Bosníu þar sem hann var meðal annars að skoða nýja leikmenn, náð hefur verið samkomulagi við 25 ára gamla bosnískan miðjumann/framherja og annan 25 ára gamlan miðvörð frá Slóveniu.

Denis Cardaklija snýr aftur í lið Sindra á morgun (laugardag) gegn Aftureldingu, Denis hefur átt við erfið axlameiðsli að stríða en hefur verið síðustu vikuna á Spáni í æfingaferð með Breiðablik og virðist hafa náð sér af þessum meiðslum.

Einar Smári Þorsteinsson er oft talinn mjög óheppinn maður hvað varðar meiðsli, hann meiddist nýlega aftur í læri og mun því vera frá næstu vikurnar, líklegt er þó að hann snúi aftur í lið Sindra í leik gegn Hvöt í deildabikarnum seinna í þessum mánuði, en þar munu Sindramenn kljást við gamla Sindramanninn Nezir Ohran og menn eins og Gillzenegger og Auðunn Blöndal.

Knattspyrnufélag Reyðafjarðar hefur dregið sig úr keppni í 3. deild sem þýðir að leikjum Sindra í D riðli fækka um þrjá, eða 15 leikir.

Ný Sindrarúta hefur litið dagsins ljós og eins og hefur verið greint frá á hornafjordur.is og horn.is þá má búast við alvöru langferðabíl með flatskjá og dvd-spilara.


06. mars 2008 -

- Hajrudin Cardaklija hefur skrifað undir 2ja ára samning við Knattspyrnudeild Sindra um að vera þjálfari meistaraflokks Sindra næstu tvö keppnistímabilin. Hann hefur einnig tekið að sér að þjálfa 2. flokk karla.

- Í kvöld verður haldinn aðalfundur Knattspyrnudeildar Sindra kl. 20.00 í Nýheimum, meira um það á hornafjordur.is.

- Búið er að staðfesta að allavega tveir nýjir leikmenn verða með liðinu í sumar, slóvenskur miðvörður og bosnískur framherji sem er skyldur Seval Zahirovic.

- Margir ungir leikmenn munu fá líklega að spreyta sig á móti Reyni Sandgerði á laugardaginn. Helst er þá að nefna Þorstein Jóhannsson, Ólaf Albert Sævarsson, Hauk Halldórsson og fleiri.

- Óvíst er hvort Denis Cardaklija verði í byrjunarliðinu á móti Reyni Sandgerði, en mun þó líklega taka einhvern þátt í þeim leik.

- Það verður haldin æfing á Fylkisvelli kl. 19 á föstudaginn, daginn fyrir leikinn á móti Reyni Sandgerði.

- Atli Haraldsson hefur gert félagskipti yfir í Fjölni, þar mun hann spila með 2. flokk í Reykjavíkurmótinu sem hefst núna á laugardaginn.

- Óskar Guðjón Óskarsson þykir líklegur á að vera tankóngur Sindra enn eitt árið.

- Einar Smári Þorsteinsson hefur jafnað sig á nárameiðslum og verður í eldlínunni á móti Reyni.

0 Responses to “Sindrafregnir”



  1. No Comments Yet

Skildu eftir svar




Heimsóknir

  • 24,452

Dagatal

nóvember 2009
M Þ M F F L S
« jún    
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30