Sindri 5
Alex Freyr Hilmarsson (2)
Atli Arnarson
Seval Zahirovic
Kristinn Þór Guðlaugsson
Augnablik 2
Sindramenn spiluðu sinn síðasta æfingaleik á móti Augnablik fyrir átökin í 3. deildinni í sumar. Sindramenn sigruðu leikinn sannfærandi og voru um tíma 4-0 yfir í leiknum. Alex Freyr Hilmarsson átti frábæran leik er hann skoraði tvö mörk sjálfur og lagði eitt upp. Sigur var aldrei í hættu í leiknum og spiluðu Sindramenn á köflum mjög vel. Atli Arnarson byrjaði einnig vel eftir að hafa skipt yfir í Sindra fyrir sumarið með því að skora fallegt mark í seinni hálfleik. Kristinn Þór Guðlaugsson heldur áfram að vera í fantaformi fyrir liðið og skoraði í leiknum.

Þorsteinn Jóhannsson byrjaði á hægri kantinum í dag.
Seval Zahirovic kom inn í liðið og átti góðan leik með þvi að setja eitt mark og var ógnandi allan leikinn. Breytingar voru á liðinu frá síðasta leik. Atli Arnarsson, Seval Zahirovic og Þorsteinn Jóhannsson komu inn í byrjunarliðið. Gunnar Ingi Valgeirsson var ekki með vegna meiðsla en Heiðar Kristinn Rúnarsson átti einnig við veikindi að glíma.

Seval Zahirovic spilaði vel gegn Augnablik.
Líklegt verður þó að það verði spilaður æfingaleikur næstu helgi á Sindravelli. Ekki er ennþá vitað hverjir andstæðingarnir verða en talið er þó blandað lið af gömlum reynsluboltum og yngri strákum úr liðinu spili við hið hugsanlega byrjunarlið gegn Létti 21. maí næstkomandi.
Byrjunarlið
01. Denis Cardaklija (Jóhann Bergur Kiesel)
02. Seval Zahirovic (Haukur Halldórsson)
03. Ólafur Albert Sævarsson
04. Július Freyr Valgeirsson (Sigfinnur Björnsson)
05. Einar Smári Þorsteinsson (f) (Sindri Örn Elvarsson)
06. Alex Freyr Hilmarsson (Einar Haraldsson)
07. Óskar Guðjón Óskarsson
08. Atli Haraldsson
09. Kristinn Þór Guðlaugsson (Steindór Sigurjónsson)
10. Atli Arnarson
11. Þorsteinn Jóhannsson
ÁFRAM SINDRI










