Sigur í fjörugum leik

Sindri 2 Árborg 1
Atli Arnarson 4′
Sindri Ragnarsson 86′

Mark undir lokin gaf Sindramönnum öll þrjú stigin
Það mátti búast við hörkuleik á Sindravöllum þegar að Sindramenn mættu deildabikarmeisturum Árborg í 2. umferð 3. deildar karla. Sindramenn urðu fyrir því áfalli rétt fyrir leikinn er Kristinn Þór Guðlaugsson meiddist á æfingu og varð því ekki með í leiknum.

Þetta var líklega mjög skemmtilegur leikur fyrir áhorfendur til að fylgjast með, mörg færi litu dagsins ljós og dramatískt mark undir lokin fullkomnaði daginn fyrir Sindramenn er þeir fögnuðu í nýju Hummel búningunum sem marka nýtt tímabil hjá Sindra.

Atli Arnarson skoraði sitt annað mark í jafn mörgum leikjum.

Sindramenn byrjuðu leikinn af krafti og var Atli Arnarson ekki lengi að láta heyra í sér. Hann var að spila í fremstu viglínu fyrir hinn meidda Kristinn Þór Guðlaugsson og skoraði gott mark eftir flottan undirbúning Sindramanna. Eftir þetta náðu Árborg undirtökum á leiknum og fengu þeir ótal mörg færi til að jafna leikinn en Dens Cardaklija var vel á verði í markinu. Sindri Örn Elvarsson fékk gott tækifæri til að bæta við í markareikning sinn en skot hans var rétt framhjá eftir góðan undirbúning hjá Þorsteini Jóhannssyni.

Denis Cardaklija var í stuði í leiknum.

Í síðari hálfleik komu Árborgarmenn sterkir til leiks og jöfnuðu leikinn eftir rúmlega 50 min. leik. Þetta vakti Sindramenn til leiks og fengu þeir nokkur ágætis tækifæri til að bæta við marki. Fyrst var það Atli Arnarson sem fékk dauðafæri eftir frábæra sendingu frá Sindra Ragnarssyni sem hafði komið inná fyrir Sindra Örn Elvarsson. Síðan var það Seval Zahirovic sem var kominn í góða stöðu eftir enn eina sendingu frá Sindra Ragnarssyni af kantinum en skot hans var í hliðarnetið. Á hinum endanum varði Denis Cardaklija enn og aftur og þá áttu Árborg einnig skot í stöng.

SUPERSUB! Sindri Ragnarsson reyndist hetja Sindramanna.

Það var ekki fyrr en á 86. min sem að hetja liðsins, Sindri Ragnarsson skoraði stórglæsilegt mark eftir fyrirgjöf frá Júlíusi Frey Valgeirssyni. Þetta mark reyndist sigurmarkið og fögnuðu Sindramenn því sínum öðrum sigri í röð og efsta sætinu í riðlinum.

Óskar Guðjón Óskarsson er 25 ára í dag.

Ummæli ritstjóra
Hægt að taka margt gott og slæmt úr þessum leik. Máttum klárlega vera beittari í fremstu línu. Atli Arnarson var oft einn og umkringdur varnarmönnum í leiknum og erfitt fyrir hann að skapa eitthvað mikið úr því. Það má segja að liðið hafi saknað Kristinn Þór Guðlaugsson mikið í þessum leik en vörn Árborgar virtist ekki ráða við löngu sendingunum innfyrir vörnina sem Kristinn Þór er svo góður að koma sér í færi úr. Dómari leiksins var ekki sá besti og mátti setja spurningamerki við mörg færi Árborgar í leiknum sem komu eftir að brotið var á varnamönnum okkar rétt fyrir utan teig. Vörnin spilaði vel í leiknum en miðjan komst ekki alveg í gang fyrr en í seinni hálfleik eftir að Árborg hafði jafnað. Innkoma Sindra Ragnarssonar hafði margt að segja um hvernig leikurinn spilaðist. Hann kom inn með mikla baráttu og vilja til að klára leikinn og á endanum kom mark hjá honum sem hann verskuldaði.

ÁFRAM SINDRI

0 Responses to “Sigur í fjörugum leik”



  1. No Comments Yet

Skildu eftir svar




Heimsóknir

  • 24,591

Dagatal

júní 2009
M Þ M F F L S
« maí    
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930