Sarpur fyrir júní, 2009

Toppslagur á Sindravelli

SINDRI – ÝMIR
13. júni 2009
kl. 16.00
Sindravellir

Sindramenn sitja á toppnum í riðlinum 2 stigum á undan Ými en þessi lið mætast á morgun á Sindravelli í toppslag A-riðils. Sindramenn hafa unnið alla sína leiki hingað til en Ýmir hafa einnig verið að spila vel undanfarið. Búast má við hörkuleik á morgun og myndi sigur segja margt um framhald Sindramanna í sumar.

Heiðar Kristinn Rúnarsson kemur ferskur inní vörnina.

Heiðar Kristinn Rúnarsson kemur inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann á móti Afríku en Seval Zahirovic hefur spilað sinn síðasta leik eftir að hafa fengið beint rautt í síðasta leik og fengið tveggja leikja bann. Sindri Ragnarsson meiddist í byrjun leiks gegn Afríku og verður því ekki með. Jóhann Bergur Kiesel hefur jafnað sig á meiðslum og kemur inní hópinn. Ingvi Ingólfsson kemur einnig inní hópinn fyrir Hauk Halldórsson.

Leikmannahópur á móti Ými
Denis Cardaklija (m), Júlíus Freyr Valgeirsson, Heiðar Kristinn Rúnarsson, Atli Haraldsson, Óskar Guðjón Óskarsson, Gunnar Ingi Valgeirsson, Einar Smári Þorsteinsson (f), Ómar Freyr Rafnsson, Atli Arnarson, Þorsteinn Jóhannsson, Kristinn Þór Guðlaugsson, Jóhann Bergur Kiesel (m), Ólafur Albert Sævarsson, Sindri Örn Elvarsson, Sigfinnur Björnsson, Ingvi Ingólfsson.

AFRÍKA 1 SINDRI 3
Einar Smári Þorsteinsson 8′
Einar Smári Þorsteinsson 33′
Atli Arnarson 86′

Sindramenn mættu skrautlegu Afríkuliði í Breiðholtinu um síðustu helgi og í raun var ekki vitað hvernig leik mátti búast við. Sindramenn byrjuðu af krafti og var fyrirliði Sindra, Einar Smári Þorsteinsson ekki lengi að koma gestunum yfir með laglegu skoti. Sindramenn fengu síðan allan fjöldan af færum sem endaði með því að Afríkumenn skoruðu eftir mistök í vörninni hjá Sindramönnum.


Nýji Sindramaðurinn, Ómar Freyr Rafnsson (v) og markaskorarinn Einar Smári Þorsteinsson (h)

Sindramenn voru ekki lengi að svara fyrir sig, enn og aftur var Einar Smári Þorsteinsson á ferð og Sindri því komnir aftur yfir. Afríkumenn fengu síðan ágætis tækifæri til að jafna leikinn aftur eftir að leikmaður þeirra hafði komist innfyrir vörn Sindra en Denis Cardaklija var vel á verði.

Hajrudin Cardaklija þjálfari og aðstoðarmaður hans, Nihad Hasecic fylgjast með sínum mönnum í leiknum.

Í síðari hálfleik réðu Sindramenn öllu og komust Afríkumenn ekki yfir miðju fyrstu 20 minúturnar af leiknum. Mörg færi litu dagsins ljós og skutu Sindramenn tvisvar í tréverkið og meðal annars varði markvörður Afríku, Óskar Davíð Sigurjónsson vel.

Seval Zahirovic (v) og Atli Haraldsson (h)

Undir lok leiksins urðu Sindramenn fyrir áfalli er Seval Zahirovic fékk að líta rauða spjaldið fyrir að slá til leikmanns Afríku. Þetta var því síðasti leikur hans með liðinu á þessu sumri en hann fer til Bosníu í næstu viku og mun vera þar yfir sumarið.

Atli Arnarson og Ólafur Albert Sævarsson ánægðir í leikslok.

Sindramenn náðu þó að skora þriðja markið, þar var enginn annar en Atli Arnarson sem heldur áfram að skora í hverjum leik. Frábær sending/skot hans af löngu færi fór yfir markvörðinn og 3-1 sigur var staðreyndin.

ÁFRAM SINDRI

Sigur í fjörugum leik

Sindri 2 Árborg 1
Atli Arnarson 4′
Sindri Ragnarsson 86′

Mark undir lokin gaf Sindramönnum öll þrjú stigin
Það mátti búast við hörkuleik á Sindravöllum þegar að Sindramenn mættu deildabikarmeisturum Árborg í 2. umferð 3. deildar karla. Sindramenn urðu fyrir því áfalli rétt fyrir leikinn er Kristinn Þór Guðlaugsson meiddist á æfingu og varð því ekki með í leiknum.

Þetta var líklega mjög skemmtilegur leikur fyrir áhorfendur til að fylgjast með, mörg færi litu dagsins ljós og dramatískt mark undir lokin fullkomnaði daginn fyrir Sindramenn er þeir fögnuðu í nýju Hummel búningunum sem marka nýtt tímabil hjá Sindra.

Atli Arnarson skoraði sitt annað mark í jafn mörgum leikjum.

Sindramenn byrjuðu leikinn af krafti og var Atli Arnarson ekki lengi að láta heyra í sér. Hann var að spila í fremstu viglínu fyrir hinn meidda Kristinn Þór Guðlaugsson og skoraði gott mark eftir flottan undirbúning Sindramanna. Eftir þetta náðu Árborg undirtökum á leiknum og fengu þeir ótal mörg færi til að jafna leikinn en Dens Cardaklija var vel á verði í markinu. Sindri Örn Elvarsson fékk gott tækifæri til að bæta við í markareikning sinn en skot hans var rétt framhjá eftir góðan undirbúning hjá Þorsteini Jóhannssyni.

Denis Cardaklija var í stuði í leiknum.

Í síðari hálfleik komu Árborgarmenn sterkir til leiks og jöfnuðu leikinn eftir rúmlega 50 min. leik. Þetta vakti Sindramenn til leiks og fengu þeir nokkur ágætis tækifæri til að bæta við marki. Fyrst var það Atli Arnarson sem fékk dauðafæri eftir frábæra sendingu frá Sindra Ragnarssyni sem hafði komið inná fyrir Sindra Örn Elvarsson. Síðan var það Seval Zahirovic sem var kominn í góða stöðu eftir enn eina sendingu frá Sindra Ragnarssyni af kantinum en skot hans var í hliðarnetið. Á hinum endanum varði Denis Cardaklija enn og aftur og þá áttu Árborg einnig skot í stöng.

SUPERSUB! Sindri Ragnarsson reyndist hetja Sindramanna.

Það var ekki fyrr en á 86. min sem að hetja liðsins, Sindri Ragnarsson skoraði stórglæsilegt mark eftir fyrirgjöf frá Júlíusi Frey Valgeirssyni. Þetta mark reyndist sigurmarkið og fögnuðu Sindramenn því sínum öðrum sigri í röð og efsta sætinu í riðlinum.

Óskar Guðjón Óskarsson er 25 ára í dag.

Ummæli ritstjóra
Hægt að taka margt gott og slæmt úr þessum leik. Máttum klárlega vera beittari í fremstu línu. Atli Arnarson var oft einn og umkringdur varnarmönnum í leiknum og erfitt fyrir hann að skapa eitthvað mikið úr því. Það má segja að liðið hafi saknað Kristinn Þór Guðlaugsson mikið í þessum leik en vörn Árborgar virtist ekki ráða við löngu sendingunum innfyrir vörnina sem Kristinn Þór er svo góður að koma sér í færi úr. Dómari leiksins var ekki sá besti og mátti setja spurningamerki við mörg færi Árborgar í leiknum sem komu eftir að brotið var á varnamönnum okkar rétt fyrir utan teig. Vörnin spilaði vel í leiknum en miðjan komst ekki alveg í gang fyrr en í seinni hálfleik eftir að Árborg hafði jafnað. Innkoma Sindra Ragnarssonar hafði margt að segja um hvernig leikurinn spilaðist. Hann kom inn með mikla baráttu og vilja til að klára leikinn og á endanum kom mark hjá honum sem hann verskuldaði.

ÁFRAM SINDRI


Heimsóknir

  • 24,564

Dagatal

júní 2009
M Þ M F F L S
« maí    
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930