SINDRI – ÁRBORG
Sindravellir
30. maí 2009
kl. 14.00
Sindramenn mæta liði Árborgar sem er spáð efsta sæti í riðlinum. Árborg gerðu sig sig lítið fyrir og unnu deildabikarinn í vor. Þessi lið mættust einmitt í þeirri keppni en þar fóru Árborg með 2-0 sigur af hólmi.

Denis Cardaklija gerði sig sekan um slæm mistök þegar liðin mættust síðast.
Árborg byrjuðu Íslandsmótið á því að gera 1-1 jafntefli við nágranna sína í Ægi en okkar menn fóru létt með Létti í fyrsta leik sumarsins á Sindravöllum. Leikurinn fór 3-0 og skoraði Atli Arnarson betur þekktur sem hornfirski lurkurinn fyrsta mark sumarsins. Seval Zahirovic og Sindri Örn Elvarsson sáu um hin mörkin. Leikurinn í dag er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið þar sem að með sigri geta Sindramenn farið á toppinn í riðlinum en lið Árborgar er ennþá að leita eftir fyrsta sigrinum sínum í sumar.

Einar Smári Þorsteinsson var valinn fyrirliði Sindra í fjarveru H. Steinar Kristjánssonar
Það má búast við breytingum í liði Sindra. Kristinn Þór Guðlaugsson er meiddur og verður ekki með í dag. Sama saga er með Alex Freyr Hilmarsson og Jóhann Berg Kiesel en báðir eru að glíma við erfið meiðsli.

Kristinn Þór Guðlaugsson (9) verður ekki með vegna meiðsla.
Sindramenn eiga erfitt prógram framundan. Þeir ferðast austur á Egilsstaði og mæta Hetti í VISA bikarnum á þriðjudaginn og síðan liggur leiðinn suður er þeir mæta skrautlegum Afríkumönnum á laugardeginum.
Leikmannahópur Sindra
Denis Cardaklija (m), Július Freyr Valgeirsson, Heiðar Kristinn Rúnarsson, Atli Haraldsson, Óskar Guðjón Óskarsson, Gunnar Ingi Valgeirsson, Einar Smári Þorsteinsson (f), Seval Zahirovic, Sindri Örn Elvarsson, Þorsteinn Jóhannsson, Atli Arnarsson, Stefán Lárus Reynisson (m), Ólafur Albert Sævarsson, Haukur Halldórsson, Sindri Ragnarsson, Ingvi Ingólfsson, Sigfinnur Björnsson, Steindór Sigurjónsson.
ÁFRAM SINDRI
hey Denni…settiru ekkert myndirnar frá léttis leiknumm inná síðuna ?
þetta er allt að koma inn gamli .. bæði úr Léttisleiknum og Árborgarleiknum