Fyrsti sigurleikur

Sindri 3 Léttir 0
Atli Arnarson
Seval Zahirovic
Sindri Örn Elvarsson

Sindramenn fara létt með Létti
Sindri mættu Léttismönnum í fyrsta leik sumarsins í 3. deild karla. Sindramenn byrjuðu af krafti og Atli Arnarson var ekki lengi að skora fyrsta mark sumarsins. Seval Zahirovic hafði þá leikið á varnamann Léttis og gefið boltann framhjá markverðinum þar sem Atli Arnarson sem var í engum vandræðum með að setja boltann í netið.


Atli Arnarson að skora fyrsta mark sumarsins

Eftir markið hægðist mikið á leiknum og lítið var um skemmtilega tilburði. Seval Zahirovic átti þó hættulegasta færið þegar að hann reyndi að skalla yfir markvörð Léttis en hann varði vel á endanum. Þorsteinn Jóhannson komst einnig í kjörið færi, hann fékk sendingu frá Seval Zahirovic innfyrir vörn Léttismanna en skot hans var yfir markið.

Síðari hálfleikur byrjaði rólega en fljótlega náðu Sindramenn undirtökum á leiknum. Hajrudin Cardaklija ákveð að setja inn Sindra Örn Elvarsson fyrir Gunnar Inga Valgeirsson sem var að glíma við smávægileg meiðsli. Sindri Örn var ekki lengi að stimpla sig inní leikinn og sýndi af og til fína tilburði. Kristinn Þór Guðlaugsson var ógnandi í leiknum og átti gott skot sem markvörður Léttis varði vel. Seval Zahirovic átti síðan síðasta orðið er skot hans af rúmlega 30 metra færi fór yfir markvörðinn og staðan var 2-0, stórglæsilegt mark. Sindri Örn Elvarsson hafði stimplað sig svo sannalega inní leikinn og fullkomnaði innkomu sína með laglegu marki rétt fyrir utan teig.

Ólafur Albert Sævarsson hafði komið inná fyrir Július Freyr Valgeirsson og fékk kjörið tækifæri til að bæta við fjórða markinu en skot hans fór í stöngina eftir frábæra sendingu frá Sindra Erni Elvarssyni.

Feðgarnir, Sævar Þór Gylfason (h) og Ólafur Albert Sævarsson (v)

Sá merkilegi atburður átti sér stað á Sindravelli í dag að í fyrsta sinn í sögu félagsins spiluðu fegðar saman. Ólafur Albert Sævarsson hafði komið inná fyrr í leiknum en undir lok leiks var skipt útaf Denis Cardaklija og inná í hans stað var gamla kempan Sævar Þór Gylfason en hann er eins og flestir vita faðir Ólafs Alberts. Sævar Þór hafði lítið að gera þessar síðustu mínútur og var í engum vandræðum með að halda markinu hreinu.

Ummæli ritstjóra
Vörnin hélt vel í leiknum enda lét lítið reyna á hana. Heiðar Kristinn Rúnarsson og Atli Haraldsson sem er nýr í þessa stöðu spiluðu báðir vel og voru í engum vandræðum. Bakverðir liðsins, Július Freyr Valgeirsson og Óskar Guðjón Óskarsson þekkja stöður sínar vel og spiluðu báðir vel í vörninni og voru alltaf ógnandi fram á völlinn. Þorsteinn Jóhannson þótti einnig mjög sprækur og fékk gullið tækifæri til að skora í leiknum. Atli Arnarson spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið síðan 2007 og skoraði mark og hefði jafnvel getað skorað fleiri. Miðja liðsins hélt vel í leiknum, Gunnar Ingi Valgeirsson vann vinnu sína vel sem djúpur miðjumaður. Einar Smári Þorsteinsson, fyrirliði liðsins þótti spila virkilega vel og sama má segja um Seval Zahirovic. Sindri Örn Elvarsson átti innkomu dagsins, en hann komst fljótlega inní leikinn og skoraði fallegt mark. Kristinn Þór Guðlaugsson komst ekki á blað í leiknum sem þykir sjaldgæft en var alltaf ógnandi í leiknum og oft óheppinn að skora ekki, einnig var honum neitað vítaspyrnu eftir að brotið var á honum innan teigs.

ÁFRAM SINDRI!

3 Responses to “Fyrsti sigurleikur”


  1. 1 Baddi maí 22, 2009 klukkan 12:29 am

    Flottur pistill. Væri gaman að sjá pistil eftir hvern einasta leik frá ritstjóra.

    Hver er annars ljósmyndari mfl. karla?

  2. 2 fcsindri maí 22, 2009 klukkan 3:41 pm

    Þeir eru nokkrir, ljósmyndarinn á leiknum í gær var enginn annar en Steindór Sigurjónsson.

  3. 3 björninn maí 22, 2009 klukkan 5:33 pm

    Til hamingju með sigurinn, strákar. Sannfærandi tölur.

    Tek undir með Hr. Baldvini. Gaman væri að fá smá pistil frá ritstjóranum, fjallarottunni og skógarkettinum sem við þekkjum í daglegu tali sem Denis Biric.


Skildu eftir svar




Heimsóknir

  • 24,452

Dagatal

maí 2009
M Þ M F F L S
« mar   jún »
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031