Sindravellir
21. maí 2009
kl. 14.00
SINDRI – LÉTTIR
Í dag mæta Sindramenn liði Léttis í fyrsta leik liðanna í 3. deild karla. Sindramenn eru taplausir á heimavelli síðan þeir báur lægri hlut gegn Magna í 2. deildinni í september 2007. Í fyrrasumar fóru Sindramenn taplausir í gegnum tímabilið á heimavelli og vonandi heldur það áfram í ár.

Þessi lið þekkjast ekki mikið og því má búast við hörkuleik frá fyrstu mínútu. Einhver meiðsli eru í herbúðum Sindra fyrir fyrsta leikinn, Alex Freyr Hilmarsson verður frá næstu 3 vikur vegna axlarmeiðsla og sama saga er með varamarkvörðinn, Jóhann Berg Kiesel en hann fór úr axlalið á síðustu æfingu fyrir leik og talið er að hann verði frá næstu 5 vikur. Að öðru leiti eru allir heilir og leikmannahópur Sindra í dag er þessi :
Denis Cardaklija (m), Július Freyr Valgeirsson, Heiðar Kristinn Rúnarsson, Atli Haraldsson, Óskar Guðjón Óskarsson, Gunnar Ingi Valgeirsson, Einar Smári Þorsteinsson, Seval Zahirovic, Þorsteinn Jóhannsson, Atli Þór Arnarson, Kristnn Þór Guðlaugsson, Sævar Gylfason (m), Sindri Örn Elvarsson, Einar Haraldsson, Ingvi Ingólfsson, Ólafur Albert Sævarsson.
Vekja athygli má á því að Sævar Gylfason er í leikmannahópi Sindra en hann er að fagna 40 ára afmælisdeginum sínum í dag og óskum við honum til hamingju með það. Það má búast við því að Sævar komi inná í leiknum og einnig sonur hans, Ólafur Albert. Þetta verður því í fyrsta sinn í sögu Sindra að feðgar spili saman.
0 Responses to “Fyrsti deildarleikur”