Eins og flestir vita hefur Atli Arnarson gert félagsskipti í Sindra frá Stjörnunni fyrir komandi tímabil. Talið var að Atli myndi vera eftir í Stjörnunni og spila í Pepsi-deildinni en hann hefur ákveðið að snúa aftur austur og reyna að hjálpa Sindramönnum að komast í 2. deild.

Hólabrautalurkurinn er betur þekktur sem “El Nino”.
Atli varð bikarmeistari í 2. flokki með FH í fyrra en skipti síðan yfir í lið Garðbæinga þar sem hann hefur verið að æfa og spila síðustu mánuði. Hann er gríðarlegur liðstyrkur fyrir Sindramenn sem ætla að gera sig líklega til að fara alla leið í sumar. Atli hefur spilað með Sindra frá ungum aldri og oft talinn mikill markaskorari. Margir búast við að hann og Kristinn Þór Guðlaugsson sjái um markaskorun liðsins í sumar í kjölfar þess að Emir Murtic mun ekki snúa aftur.

Atli Arnarson í leik með Sindra á móti Selfossi í 2. deildinni.
Upplýsingar
Nafn : Atli Þór Arnarson
Aldur : 19 ára (1989)
Staða : Framherji/Kantmaður
Mottó? : “Eina leiðin..”
Ferill með Mfl. Sindra (leikir – mörk)
2006 -
2. deild karla – 8 – 0
VISA-bikar karla – 1 – 0
2007 -
2. deild karla – 16 – 2
VISA-bikar karla – 1 – 1
Nýtt undir Sindrafregnir!
ÁFRAM SINDRI