Sarpur fyrir mars, 2009

Leikmannamál

Eins og hefur komið fram áður þá hefur að verið staðfest að Tadej Venta muni ekki snúa aftur í lið Sindra fyrir komandi tímabil en þetta eru slæmar fréttir fyrir Sindramenn enda spilaði hann vel í fyrra og skoraði einnig nokkur mikilvæg mörk. Þessi ágæti Slóveni hefur þó oft sagt hafa mikinn áhuga að snúa aftur á Höfn en þar sem knattspyrnufélagið á í fjárhagslegum erfiðleikum eins og flest öll félög hérlendis mun hann ekki eiga þann möguleika að snúa aftur.

Tadej Venta spilaði 13 leiki fyrir Sindra í fyrra og skoraði 4 mörk. Hann spilar nú með sínu gamla félagi í slóvensku 1. deildinni, NK Krka.

Sama saga er með Emir Murtic en þó var alltaf talið mjög ólíklegt að hann snúi aftur til Íslands sökum þess að það er næstum alveg ómögulegt fyrir hann að fá atvinnuleyfi og ekki hjálpar ástandið sem við Íslendingar (og þessi ágæti útlenski ritstjóri) búum í.

Emir spilaði lykilhlutverk í sóknarleik Sindra í fyrra og því verður hann mikill missir fyrir komandi tímabil. Emir skoraði 11 mörk í 14 leikjum fyrir Sindra í fyrra þar á meðal 2 mörk í 1 bikarleik.

Miklar vangaveltur hafa einnig verið um þann möguleika að Stephen Thurlby komi aftur til landsins en orðrómur er um að reynt sé verið að útvega vinnu fyrir honum en þó er talið ólíklegt að eitthvað verði úr þeim málum.

Steve skoraði 1 mark í 14 leikjum í 3. deildinni og 1 mark í 2 bikarleikjum.

Heiðar Kristinn Rúnarsson virðist einnig vera stórt spurningamerki fyrir sumarið. Hann spilaði lykilhlutverk í vörn Sindra í fyrra og því væri hann gífurlegur liðsstyrkur ef hann snéri aftur austur fyrir sumarið.

Heiðar spilaði æfingaleik með Sindra gegn Álftanesi fyrir rúmum hálfum mánuði en talið er að hann muni spila með liðinu í deildabikarnum en ennþá er óvíst með sumarið.

Sindri skipta yfir í Hummel

Eins og kom fram á hinni Sindrasíðunni þá hefur knattspyrnudeild Sindra ákveðið að hætta samstarfi sínu með Jako og hefja nýja starfsemi með Hummel fyrir komandi leiktímabil.

Hummel tekur við af Jako fyrir nýja keppnistímabilið.

Ákveðið hefur verið að meistaraflokkarnir hjá Sindra gangi í nýjum Hummel treyjum fyrir sumarið. Þetta á þó einnig við yngri flokka en í raun munu allir Sindrabúningar verða merktir Hummel i sumar. Nýja treyjan verður mjög svipuð þeirri sem var notuð í fyrra og verður haldið áfram því að nota svarta litinn mikið sem og gylltan lit sem fylgir nýju línu Hummel, Technical Gold.

Hérna fyrir neðan er mynd af aðalbúningnum og varabúningum en hann fer þó ekki í notkun fyrr en á þarnæsta sumri. Sindramenn munu þá nota sína hvítu varabúninga frá Jako á þessu sumri.


Hér fyrir neðan eru svo markmannsbúningarnir.


Margir hafa velt fyrir sér hvaða styrktaraðili mun vera framan á nýju búningunum en Landsbankinn er einn aðalstyrktaraðili Sindra og munu að sjálfsögðu halda áfram að bera merki sitt á búningum Sindra.

Deildabikarinn

SINDRI 0    ÁRBORG 2

Sindramenn spiluðu sinn fyrsta leik í deildabikarnum í ár á Selfossi gegn liði Árborgar sem eins og margir vita eru einnig með Sindra í riðli í 3. deildinni í sumar.

Leikurinn byrjaði rólega og var fátt um færi í fyrri hálfleiknum. Alex Freyr Hilmarsson átti þó besta færi Sindramanna í fyrri hálfleik en hann virtist skora en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Alex Freyr Hilmarsson hafði þá fengið góða sendingu frá Einari Smára Þorsteinssyni og komist innfyrir vörn Árborgar og klárað með góðu skoti en línuvörður leiksins dæmi rangstöðu.

Árborg sóttu meir eftir þetta og áttu nokkur skot á marki Sindramanna sem vörnin og Denis Cardaklija áttu ekki í vandræðum með. Í síðari hálfleik fengu Sindramenn nokkur dauðafæri sem á einhvern ótrúlegan hátt þeir náðu ekki að nýta sér. Fyrst átti Einar Smári Þorsteinsson skot í stöngina en þaðan fór boltinn til Kristins Þórs Guðlaugssonar sem virtist ætla að setja boltann í autt markið en á einhvern ótrúlegan hátt náðu varnamenn Árborgar að verja á línu.

Kristinn Þór Guðlaugsson var óheppinn að skora ekki.

Stuttu seinna fengu Árborg aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Sindramanna og skoruðu þeir glæsilega úr henni. Þetta virtist hafa slæm áhrif á Sindramenn en þeir fengu þó nokkur hálffæri eftir þetta og þá sérstaklega Atli Haraldsson sem virtist hafa komist í gegnum vörn Árborgar en fyrirgjöf Sindra Elvarssonar virtist vera of föst fyrir hann og boltinn skaust af honum og framhjá markinu.

Þorsteinn Jóhannsson kom inn í byrjunaliðið í hægri bakverði.

Undir lok leiksins gerði Denis Cardaklija sig sekan um slæm mistök i markinu en hann missti boltann úr höndunum eftir fyrirgjöf innfyrir vörn Sindra og átti framherji Árborgar ekki í vandræðum með að setja boltann í autt markið.Leiknum lauk því 2-0 fyrir Árborg og hefðu úrslitin verið önnur hefðu Sindramenn haft smá heppni með sér en á endanum hafði Árborg betur.

Margir af ungu strákunum spiluðu í leiknum og stóðu allir sig vel og vonandi er þetta byrjunin af einhverju góðu hjá “kjúklingunum”.

Byrjunarlið Sindra

#10 ?

10.
Oft hefur verið sagt að talað 10 sé mikilvægasta talan í knattspyrnu, persónulega finnst ritstjóra síðunnar þetta vera tóm þvæla enda finnst honum skemmtilegt að rökstyðja lélegar skoðanir.

Eins og flestir vita verður fyrirliði liðsins, H. Steinar Kristjánsson frá næstu mánuði vegna meiðsla þannig að margir hafa spurt sig hver mun bera þessa merkilegu tölu á bakinu. Margir koma auðvitað til greina en ritstjóri síðunnar ákveð að spurja nokkra vel valda aðila um þeirra skoðun á þessi máli.

H. Steinar Kristjánsson þykir svalur knattspyrnumaður.

Er hann næstur í röðinni?

Hér fyrir neðan eru ummæli vel þekktra Hornfirðinga varðandi þetta mál.

“Það er bara einn sem kemur til greina..”  – Árni Gíslason, stjórnmálafræðinemi og stuðningsmaður Sindra.

“Ég hef enga sérstaka skoðun á þessu, allavega ekki Oggi (Óskar Guðjón Óskarsson)” - Björn Pálsson, leikmaður Stjörnunnar og fyrrverandi fyrirliði Sindra.

“ég..” – Sigfinnur Björnsson, leikmaður Sindra og kærasti Miley Cyrus.

“Litlimon auðvitað..” – Einar Haraldsson, snjóbrettamaður.

“Hver finnst mér ??  þetta eru nu bara tölur sem skipta ekki miklu máli.. en kannski Einar Smári.. – Óskar Guðjón Óskarsson, leikmaður Sindra og refsari.

Hverjir snúa aftur á Höfn?

Miklar vangaveltur hafa verið um leikmannamál Sindra fyrir komandi leiktímabil. Það er ennþá óljóst með marga og í raun einnig búið að útiloka að nokkrir leikmenn snúa aftur.

Ritstjóri þessara síðu gerir sér grein fyrir þvi að ekkert hefur verið að gerast hérna undanfarna mánuði en þar sem styttist óðum í fyrsta leik í deildabikarnum og í raun deildarkeppnina sjálfa mun þessi síða vera mun virkari næstu vikur og ýmsar breytingar verða á henni í kjölfar þess.

Hér fyrir neðan er smá listi yfir leikmenn sem munu að öllum líkindum snúa heim aftur í fjörðinn og einnig listi yfir þá sem munu ekki koma til með að spila með Sindra í sumar.

Lykilmenn

Óskar Guðjón Óskarsson
Mun snúa aftur í lið Sindra í sumar og líklega verða einn af lykilmönnum en þessi kálfastóri bakvörður hefur sýnt það áður að hann getur tekið fleiri en eina stöðu á vellinum en hann stóð sig oft á tíðum vel í miðverði þegar til hans var kallað að spila þar.

Það mun koma mörgum á óvart, en hann er í raun þessi til vinstri á myndinni.

Óskar hefur verið að æfa grimmt í vetur með Ými sem spila með Sindra í A-riðli í sumar og þarf aldrei að efast að hann sé í góðu líkamlegu ástandi og sólbrúnn. Margir velta hinsvegar fyrir sér hvort þetta verður sumarið sem hann skorar loksins í rétt mark og margir vilja meina að hann eigi að taka fleiri aukaspyrnur enda hefur þessi “sjöa” líst yfir því að hann sé með skottækni á borð við menn eins og Cristiano Ronaldo og Steven Gerrard.

Einar Smári Þorsteinsson
Þessi litli en gífurlega mikilvægi leikmaður Sindra mun snúa aftur heim og verður hann lykilmaður í sumar. Einar Smári hefur oft á tíðum átt við erfið meiðsli að stríða en nú virðist sem að hann sé loksins búinn að jafna sig á þeim. Hann missti af byrjun tímabilsins í fyrra vegna meiðsla en vonast er að hann verði með frá fyrsta leik á komandi tímabili.

Orðrómur er um það að hann gæti orðið næstu fyrirliði liðsins þar sem H. Steinar Kristjánsson verður meiddur og Július Freyr Valgeirsson mun að öllum líkindum ekki spila með Sindra í sumar. Í raun koma margir til greina sem fyrirliði en það þykir þó líklegast að járnmaðurinn Gunnar Ingi Valgeirsson verði fyrirliði aftur enda hefur hann spilað yfir 20.000 leiki fyrir Sindra. Kristinn Þór Guðlaugsson þykir einnig líklegur kandídat.

Kristinn Þór Guðlaugsson

Betur þekktur sem Krilli krútt verður aftur í fremstu línu Sindramanna og mun liðið aldrei þarfnast meira á mörkunum hans en á komandi tímabili. Kristinn Þór Guðlaugsson skoraði grimmt fyrir liðið í fyrrasumar og verður um svipað að ræða aftur núna í sumar.

Atli Haraldsson
Spilaði vel á miðjunni í fyrrasumar og verður hann lykilmaður í liðinu í sumar. Atli hefur verið að æfa með Sindra fyrir austan eins og Kristinn Þór Guðlaugsson og vonandi nær hann sér á strik frá fyrsta leik enda verður hann mjög mikilvægur fyrir liðið. Atli myndaði oft sterka miðju með H. Steinari Kristjánssyni, Einari Smára Þorsteinssyni og Seval Zahirovic og vonandi heldur það áfram.

Gunnar Ingi Valgeirsson
Járnkarlinn sem er eldri en Alþingi mun eins og oft áður vera mikilvægur en reynsla og baráttuvilji hans hefur oft mikið að segja um gengi liðsins í leikjum. Gunnar Ingi heldur áfram að halda sér í fantaformi og hefur oft á tíðum getað spilað fleiri en eina stöðu á vellinum sem verður liðinu mikilvægt. Það þykir líklegt að Gunnar Ingi taki aftur fyrirliðabandið í fjarveru H. Steinars Kristjánssonar.

Denis Cardaklija
Bosníski kötturinn kemur til með að spila með liðinu í sumar og vonandi nær hann að halda áfram að standa sig fyrir liðið en með það í huga að reyna að halda hreinu í fleiri leikjum. Í fyrra spilaði hann sitt annað tímabilið með liðinu og var mikilvægur fyrir liðið eins og margir aðrir.

Kjúklingarnir

Oft hafa ungu leikmenn Sindra í gegnum tíðina verið mikilvægir fyrir liðið og vonast margir núna á tímum sem þessum að ungu og efnilegu strákarnir stígi upp og berjist fyrir sæti sínu í liðinu. Nokkur nöfn koma til huga sem ungir og efnilegir og þá helst Þorsteinn Jóhannsson, Sindri Örn Elvarsson, Ólafur Albert Sævarsson og meistari Sigfinnur Björnsson. Þorsteinn Jóhannsson er líklegur að fá að spila mikið í sumar og hafa margir trú á því að hann muni standa sig með prýði enda efnilegur leikmaður þar á ferð. Sömu sögu er að segja um hina þrjá efnilegu drengi, Sindra Örn, Ólaf Albert og Sigfinn en sá síðastnefndi hefur sagt oft á tíðum að hann sé næsti Fernando Torres Hornafjarðar.


Sindramenn fagna marki í fyrrasumar.

Útlendingahersveitin

Miklar vangaveltur hafa verið hvort mögulega væri hægt að fá þá ágætu erlendu leikmenn sem voru í liðinu fyrra aftur til liðsins í ástandinu sem við búum í dag. Þessir menn voru liðinu mjög mikilvægir en það þykir ólíklegt að þeir allir snúi aftur. Emir Murtic mun ekki snúa aftur en það hefur verið staðfest af stjórn Knd. Sindra, hann skoraði grimmt fyrir liðið og lagði einnig upp mikið af mörkum og myndaði sterka framlínu með Kristinn Þór Guðlaugssyni.

Tadej Venta mun einnig líklega ekki snúa aftur en hann stóð sig vel í fyrrasumar og skoraði nokkur mikilvæg mörk fyrir liðið, þessi slóvenski varnamaður hefur oft sagt að hann hefur áhuga að snúa aftur en virðist stjórn Sindra geta lítið gert í því að fá hann aftur til landsins. Stephen John Thurlby var talinn líklegastur að snúa aftur en orðrómur er um það að hann muni ekki heldur snúa aftur til landsins. Sá líklegasti til að spila með liðinu í sumar aftur er Berbatov Hornafjarðar, Seval Zahirovic. Seval lýsti því yfir eftir tímabilið í fyrra að hann ætlaði að leggja skónna á hilluna en orðrómur er að hann muni snúa aftur í eitt tímabil í viðbót.


Heimsóknir

  • 24,564

Dagatal

mars 2009
M Þ M F F L S
« sep   maí »
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
3031