Ný heimasíða

Það hlaut að koma að því gott fólk, Sindramenn loksins komnir með nýja og betri heimasíðu. Reynt verður að vinna í þessari vel fram að sumri og reyna að gera hana skemmtilega til lesningar.

Ég hef tekið að mér að halda þessari síðu uppi og hef nú þegar ráðið ljósmyndara fyrir sumarið, félaga minn hann Árna Gíslason. Nú eru margir að hugsa hvað verður um blogcentral síðuna en hún auðvitað verður bara ennþá til og eins og er er Steindór að halda henni á lífi og er það besta mál, ekkert verra fyrir okkur að eiga tvær síður.

Þar sem ég er skyldur þjálfaranum þá get ég hent hérna inn nýjum fréttum og upplýsingum fyrir alla til að sjá, eins og með t.d. æfingar og aðrar tilkynningar.

Hef þetta ekki lengra í bili, ætla að henda inn vonandi nýjum fréttum, þá sérstaklega frá æfingaleikjunum sem voru þessa helgi og kannski myndum frá leiknum sem Árni ljósmyndari tók.

- Denis Cardaklija

0 Responses to “Ný heimasíða”



  1. No Comments Yet

Skildu eftir svar




Heimsóknir

  • 24,564

Dagatal

febrúar 2008
M Þ M F F L S
    mar »
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
2526272829