Leiðin í úrslitakeppnina..

Lítið hefur verið að gerast á þessari síðu núna síðustu vikur sökum leti hjá ritstjóranum. Ég hef allavega ákveðið að vera meira virkur á þessari síðu núna þegar úrslitakeppnin hefst og setja inn reglulega færslur, myndir, myndbönd og fleira næsta mánuðinn.

Hér fyrir neðan eru stuttar lýsingar á síðustu leikjum Sindra en þó í engri sérstakri röð. Síðar munu koma fleiri myndir inn frá leikjum liðsins í sumar og í kjölfar myndbönd þar sem viðtöl voru tekin við leikmenn fyrir og eftir leiki.

Þokan á Seyðisfirði fór illa í Sindramenn
Huginn 2 Sindri 0
25.07.2008

Eins og flestir ættu nú að vita hafa Sindramenn tryggt sér sæti í úrslitakeppnina en eru þó ennþá að berjast um fyrsta sætið í riðlinum sínum við Huginn frá Seyðisfirði. Þessi tvö lið munu mætast í úrslitaleik um efsta sætið í D-riðli næstkomandi laugardag á Sindravöllum. Síðustu tveir leikir liðanna hafa verið mjög spennandi og hafa bæði lið sigrað einn leik. Sindri unnu á Hornafirði fyrr í sumar 4-3 en Huginsmenn sigruðu 2-0 í þokunni á Seyðisfirði.

Bestur
H. Steinar Kristjánsson

Atvik
Furðulegur hlutur gerðist í leiknum en þrír fengu að líta rauða spjaldið hjá Sindra, en þó enginn af vellinum heldur fengu þeir Gunnar Ingi Valgeirsson, Hajrudinn Cardaklija þjálfari og Björn Sigfinnsson liðstjóri rautt á varamannabekknum.

Sindramenn töpuðu sínum fyrsta leik í þokunni á Seyðisfirði.

Völlurinn var blautur og erfiður fyrir okkar menn.

Grátlegt jafntefli á Egilsstöðum.
Spyrnir 2 Sindri 2
10.07.2008

Sindramenn mættu Spyrnismönnum á gervigrasinu á Fellavelli. Sindri voru alltaf betri aðilinn í leiknum en áttu í töluverðu basli með heimamenn. Spyrnir komust yfir í leiknum en Kristinn Þór Guðlaugsson jafnaði leikinn og þannig voru leikar í hálfleik. Í síðari hálfleik skoruðu Spyrnir umdeilt mark eftir hornspyrnu og eftir það sóttu Sindramenn stíft og uppskáru mark þegar um tuttugu mínútur voru eftir að leiknum. Þar var á verkum Bosníumaðurinn Emir Murtic. Undir lok leiksins fengu Sindri nokkur dauðafæri. Fyrst átti Emir Murtic skot í stöngina, stuttu síðan björguðu Spyrnismenn á marklínu og til að toppa allt þetta þá klúðraði Emir Murtic vítaspyrnu og jafntefli var staðreynd.

Góð innkoma
Heiðar Kristinn Rúnarsson

Atvik
Brotið var á Emir Murtic inn í teig og dæmd var vítaspyrna. Varnamaður Spyrnis var heppinn að fá ekki rautt spjald eftir að hafa verið aftasti varnamaðurinn í stöðunni.

Fyrirliðinn var sprækur í leiknum.

Emir Murtic skoraði mark en var óheppinn að bæta ekki við fleiri.

Ósigrandi í ljónagryfjunni.
Sindri 2 Dalvík/Reynir 1
19.07.2008

Sindri fengu Dalvíkinga í heimsókn í blíðunni á Hornafirði. Sindramenn voru án Seval Zahirovic en hann meiddist illa og þurfti að vera frá næsta mánuðinn. Sindri byrjuðu af krafti og komust yfir snemma í leiknum, þar var á verkum slóvenska slátturvélinn Tadej Venta en þetta var fyrsta mark hans fyrir Sindra. Undir lok fyrri hálfleiksins bætti H. Steinar Kristjánsson við öðru marki heimamanna með góðum skalla á fjærstöng. Dalvík/Reynir náðu þó að klóra í bakkann undir lok leiksins með mark úr vítaspyrnu eftir að handboltamarkmaður liðsins Óskar G. Óskarsson varði vel inn í teig.

Bestur
H. Steinar Kristjánsson

Atvik
Tadej Venta skoraði fyrsta mark sitt fyrir Sindra en markið gat hugsanlega verið skrifað á Kristinn Þór Guðlaugsson.

Dómari leiksins var ekki mikið í að gefa spjöld í leiknum en leikmaður Dalvík/Reynis hefði hugsanlega getað fengið appelsínugult spjald fyrir þessa tæklingu á fimleikatröllinu Einari Smára Þorsteinssyni.

H. Steinar Kristjánsson fagnar eftir að hafa komið Sindra í 2-0.

Loksins sigur gegn Fáskrúðsfirðingum.
Leiknir 1 Sindri 2
07.08.2008

Oft á tíðum hafa Sindramenn spilað vel í fyrsta leik eftir Verslunarmannahelgina. Sú var staðreyndin aftur í ár og eftir tvö erfið jafntefli gegn Leikni kom loksins sigur. Kristinn Þór Guðlaugsson kom Sindramönnum á bragðið en Uche Asika jafnaði metin fyrir Fáskrúðsfirðinga rétt fyrir hálfleik. Í síðari hálfleik komu Sindri sterkir inn og komust aftur yfir en þar var á verkum Emir Murtic. Eftir þetta sóttu bæði lið mikið, Kristinn Þór Guðlaugsson átti stangarskot og hinumegin varði Denis Cardaklija oft á tíðum meistaralega en ekki urðu mörkin fleiri og Sindramenn að ná sér í þrjú dýrmæt stig og í raun að tryggja sér sæti í úrslitakeppnina.

Bestur
Denis Cardaklija

Atvik
Sindramenn voru að spila undir liðstjórn Árna Þorvaldssonar fyrrum þjálfara liðsins en Hajrudin Cardaklija þjálfari liðsins var að taka út leikbann og þurfti því að fylgjast með upp í stúku.

Krilli Krútt skorar hér fyrsta mark leiksins.

Sindramenn fagna markinu vel og innilega.

Kjúklingarnir frá Egilsstöðum fengu að kenna á því.
Sindri 9 Spyrnir 1
13.08.2008

Margir bjuggust við öruggum sigri Sindramanna í þessum leik en fáir bjuggust þó við að þeir myndu skora níu sinnum. Staðan í hálfleik var 3-1 fyrir Sindra. Mörkin skoruðu H. Steinar Kristjánsson og Kristinn Þór Guðlaugsson (2). Sindri bættu síðan við sex mörkum í þeim síðari en þar voru á ferð Emir Murtic (2), Kristinn Þór Guðlaugsson (2), H. Steinar Kristjánsson og Tadej Venta. Þetta var hingað til stærsti sigur Sindra í sumar.

Bestur
Kristinn Þór Guðlaugsson

Atvik
Markmaður Sindra, Denis Cardaklija hefur ekki náð að halda hreinu í sumar nema í einum leik og það var gegn Spyrni í bikarnum. Jóhann Bergur Kiesel, varamarkmaður fékk að spreyta sig í síðari hálfleik í leiknum en þeir hafa haldið jafnoft hreinu en Denis spilað 960 mínútum meira en Jóhann Bergur.



Línuverðir leiksins, Haraldur Jónsson og Guðrún Fema Ólafsdóttir hefðu hugsanlega átt að skiptast á stuttbuxum.

Sindramenn þakka áhorfendum fyrir stuðninginn í leiknum.

Stórleikur

Næsti leikur Sindra er á Seyðisfirði á föstudaginn næsta kl. 19.00. Sindri mæta erfiðu liði Hugins en þessi lið sitja í fyrsta og öðru sæti riðilsins. Fyrri leikur liðanna endaði með 4-3 sigri Sindra og má því búast við erfiðum leik fyrir austan.

Með sigri geta Sindramenn komist í þægilega stöðu á toppnum og því mjög mikilvægt að ná góðum úrslitum. Byrjunarliðið verður líklega óbreytt en eitthvað er um meiðsli í leikmannahóp Sindra.

Denis Cardaklija hefur átt við bakmeiðsli að stríða en verður líklega tilbúinn í slaginn á föstudaginn. Heiðar Kristinn Rúnarsson fékk stóran skurð fyrir ofan augað í leik með Dýnamó Höfn á dögunum og verður líklega ekki með. Seval Zahirovic hefur byrjað að æfa með liðinu aftur en hann mun fljúga út á laugardaginn til Bosníu þar sem hann mun byrja endurhæfinguna sína og verður þar í tvær vikur.

Mikilvægir leikmenn :

5. Tadej Venta
Átti mjög góðan leik gegn Dalvík/Reynir á dögunum. Hann var mjög öruggur í leiknum og kórónaði frammistöðuna sína með því að skora sitt fyrsta mark fyrir Sindra í leiknum.

10. H. Steinar Kristjánsson
Búinn að sýna mikinn stöðugleika í sumar og spila vel. Hann skoraði í síðasta leik gegn Dalvík/Reynir og var einn af betri mönnunum í jafnteflisleiknum gegn Spyrni. Fyrirliðinn er gríðarlega mikilvægur liðinu og heldur vonandi áfram að spila vel.

11. Einar Smári Þorsteinsson
Hefur átt við erfið meiðsli að stríða í sumar en hefur verið að sýna sitt gamla andlit aftur í síðustu leikjum. Hann átti sérstaklega mjög góðan leik gegn Dalvík/Reynir og fer vonandi að styttast að hann setji nokkur mörk fyrir liðið eins og í den.

Líklegt byrjunarlið :

01. Denis Cardaklija (m)
02. Stephen John Thurlby
03. Atli Haraldsson
04. Július Freyr Valgeirsson
05. Tadej Venta
06. Gunnar Ingi Valgeirsson
07. Óskar Guðjón Óskarsson
08. Emir Murtic
09. Kristinn Þór Guðlaugsson
10. H. Steinar Kristjánsson (f)
11. Einar Smári Þorsteinsson

Áfram Sindri !

Á sigurbraut..

Sindri 2 Dalvík Reynir 1
Tadej Venta 13′
H. Steinar Kristjánsson 43′

Sindramenn komust aftur á sigurbraut með öruggum sigri á Dalvík/Reyni á Sindravöllum. Slóvenski varnamaðurinn Tadej Venta skoraði sitt fyrsta mark fyrir Sindra og fyrirliðinn H. Steinar Kristjánsson bætti við öðru marki undir lok fyrri hálfleiks.

Sindri eru eina taplausa liðið í 3. deildinni.

Sindramenn byrjuðu leikinn rólega og lítið var um færi fyrr en að Sindramenn fengu aukaspyrnu fyrir utan teig. Július Freyr Valgeirsson tók aukaspyrnuna og Tadej Venta kom boltanum í netið eftir að Kristinn Þór Guðlaugsson hefði átt skot að marki.

Tadej Venta skoraði sitt fyrsta mark fyrir Sindra.

Eftir markið gáfu Dalvíkingar aðeins í og áttu ágætis færi til að jafna en eftir það stjórnuðu Sindramenn leiknum og bættu við marki undir lok fyrri hálfleiks. Atli Haraldsson kom með frábæra sendingu inn í teig eftir aukaspyrnu sem lenti beint á kollinn á fyrirliðanum og í markið. Staðan því mjög vænleg fyrir heimamenn.

Í síðari hálfleik fengu Sindramenn nokkur færi til að gera út um leikinn. Emir Murtic komst tvisvar í gegnum vörn Dalvík/Reynis en misnotaði bæði færi. Tryggvi Rafn Sigurbjarnarson sem hafði komið inná fyrir Kristinn Þór Guðlaugsson fékk gott tækifæri til að koma Sindra í 3-0 í sínum fyrsta leik en skot hans fór rétt framhjá markinu.

Sindramenn áttu mjög góðan leik gegn Dalvík/Reyni.

Undir lok leiksins fengu Dalvík/Reynir vítaspyrnu eftir að Óskar G. Óskarsson hafði tekið boltann með hendi. Fyrirliði þeirra skoraði örugglega úr vítinu en ekkert meira gerðist í leiknum og Sindramenn fóru með sigur af hólmi eftir að hafa gert jafntefli í síðustu tvem leikjum.

Leikmannahópur Sindra :

Denis Cardaklija (m), Gunnar Ingi Valgeirsson, Július Freyr Valgeirsson, Tadej Venta, Óskar G. Óskarsson, Atli Haraldsson, H. Steinar Kristjánsson (f), Einar Smári Þorsteinsson, Emir Murtic (Einar Haraldsson), Stephen John Thurlby, Kristinn Þór Guðlaugsson (Tryggvi Rafn Sigurbjarnarson).

Áfram Sindri !

Aftur jafntefli!

Sindramenn hafa nú gert tvö jafntefli í röð og virðast vera í einhverri lægð. Liðið heldur þó ennþá toppsætinu í D-riðli með 4 stiga forystu á Huginn. Sindramenn sóttu Spyrni heim á Egilsstöðum og skoruðu þeir Emir Murtic og Kristinn Þór Guðluagsson mörk Sindra, einnig fengu Sindramenn vítaspyrnu í blálokin en Emir Murtic misnotaði hana og leikurinn endaði því 2-2.

(c) Austurglugginn/Gunnar

Emir Murtic átti erfiðan dag.

Sindramenn mættu á Fellavöll grimmir og ætluðu sér þrjú stig eftir jafntefli á heimavelli gegn Leikni F. Leikurinn byrjaði rólega og Sindramenn héldu boltanum og reyndu að skapa sér einhver færi. Spyrnir áttu þó fyrsta færið í leiknum en eftir mistök í vörn Sindra slapp leikmaður Spyrnir einn í gegn en skot hans var varið af Denis Cardaklija.

Eftir þetta sóttu Sindramenn enn meir og uppskáru nokkur hálffæri. Besta færið fram að þessu átti fyrirliðinn H. Steinar Kristjánsson en skaut boltanum rétt framhjá. Spyrnismenn skoruðu fyrsta markið í leiknum um miðjan fyrrihálfleik eftir sendingu inn í teig sem rataði yfir Denis Cardaklija í markinu og inn. Staðan því 1-0 fyrir heimamenn.

(c) Austurglugginn/Gunnar

Tadej Venta í baráttunni ..

Sindramenn voru ekki lengi að svara en markamaskínan Krilli Krútt var enn og aftur að skora fyrir Sindra. Hann fékk langan bolta inn í teig frá Júliusi Frey Valgeirssyni sem rataði á kollinn og yfir markmanninn. Sindramenn sóttu áfram eftir þetta og áttu nokkur ágætis færi. Kristinn komst einu sinni einn í gegn en skot hans var í hliðarnetið.

Síðari hálfleikur byrjaði ekki vel fyrir Sindramenn en Spyrnismenn fengu hornspyrnu eftir rúma 10 mínútna leik og uppskáru mark. Sindramenn vildu fá aukaspyrnu en virtist hafa verið brotið á Júliusi Valgeirssyni en dómari leiksins var ekki sammála.

(c) Austurglugginn/Gunnar

Július Freyr Valgeirsson átti góðan leik en fór útaf meiddur.

Eftir markið breytti þjálfari liðsins, Hajrudin Cardaklija til en Július Freyr Valgeirsson fór útaf meiddur og inná kom Heiðar Kristinn Rúnarsson.

Sindramenn náðu betri takt í leiknum eftir þetta þar sem H. Steinar Kristjánsson fór framar á völlinn og Gunnar Ingi Valgeirsson sem hafði spilað hægir bakvörð í leiknum kom í stöðu djúpa miðjumannsins. Sindramenn fengu mörg góð tækifæri til að skora og það var ekki fyrr en að fyrirliðinn Steinar renndi boltanum á Emir Murtic inn í teig sem átti ekki í erfiðleikum með að setja hann framhjá markmanninum með vinstri.

(c) Austurglugginn/Gunnar

Emir Murtic skoraði enn og aftur.

Sindri héldu áfram að sækja og stuttu síðar átti H. Steinar Kristjánsson skaut rétt framhjá og rétt eftir það skaut Emir Murtic í stöngina. Hinumegin fengu Spyrnismenn frábært færi til að stela öllum þrem stigunum. Sending frá hægri kanti lendi á kollinn á hávöxnum varnamanni Spyrnis en Denis Cardaklija varði meistaralega.

Í uppbótartíma fengu Sindramenn síðan vítaspyrnu en brotið var á Emir inn í teig en hann hafði komist einn í gegn. Hér var enginn spurning um rautt spjald en ágæti dómari leiksins var ekki á sama máli. Emir steig sjálfur á punktinn en brenndi af. Stuttu síðar fékk Emir Murtic enn eitt dauðafærið en hann stóð einn fyrir opnu marki en á einhvern ótrúlegan hátt náðu Spyrnismenn að bjarga á marklínu.

Ekkert meira markvert gerðist í leiknum og því jafntefli á Egilsstöðum. Sindramenn eru með 12 stig eftir leikinn og standa enn í efsta sæti riðilsins og eiga erfiðan heimaleik gegn góðu liði Dalvík/Reynis.

Lið Sindra : Denis Cardaklija (m), Július Freyr Valgeirsson (Heiðar Kristinn Rúnarsson), Tadej Venta, Óskar Guðjón Óskarsson, Gunnar Ingi Valgeirsson, H. Steinar Kristjánsson (f), Atli Haraldsson, Einar Smári Þorsteinsson, Emir Murtic, Stephen John Thurlby (Haukur Halldórsson), Kristinn Þór Guðlaugsson (Þorsteinn Jóhannsson).

NÝTT í Sindrafregnum !

ÁFRAM SINDRI !

Sindramenn standa á toppnum.

Það sem af er mótinu standa Sindri í efsta sæti D-riðilsins í 3. deild karla. Síðan hefur verið lítið uppfærð á síðustu dögum og því ætla ég hér með að nefna það helsta sem hefur gerst hjá liðinu.

14. júni :

Dalvík/Reynir 1 Sindri 3
Sindramenn fóru á kostum í fyrri hálfleik og komust í góða stöðu snemma í leiknum með þrem glæsilegum mörkum. Seval Zahirovic skoraði stórglæsilegt mark með þrumuskoti fyrir utan teig. Emir Murtic og Kristinn Þór Guðlaugsson sáum um hin mörkin.

Seval Zahirovic (til hægri) hefur verið í góðu formi það sem af er tímabilinu.

Í síðari hálfleik meiddist Seval og þurfti að fara á velli og stuttu seinna fékk Emir Murtic beint rautt. Sindramenn vörðust því það sem eftir var af leiknum og Denis Cardaklija varði oft á tíðum meistaralega og náðu því Sindramenn að krækja sér í þrjú mikilvæg stig að norðan.

18. júni :

Reynir S. 3 Sindri 0
Sindramenn mættu 2. deildarliði Reyni í 32. liða úrslitum Visabikarsins og í liði Sindra vantaði tvo lykilmenn. Emir Murtic var að taka út leikbann og Seval Zahirovic var meiddur.

Denis Cardaklija og Halldór Steinar Kristjánsson í leik gegn Aftureldingu.

Sindramenn spiluðu ekki sinn besta leik og töpuðum með þremur mörkum gegn engu. Í hálfleik var staðan 0-0. Óskar Guðjón Óskarsson skoraði þó stórglæsilegt mark í leiknum en því miður í vitlaust mark.

21. júni :

Sindri 4 Huginn 3
Sindramenn mættu sterku liði Hugins á heimavelli og búist var við erfiðum leik. Sindramenn héldu áfram sigurgöngu sinni og eru ennþá eina taplausa liðið í riðilinum. Huginsmenn komust þó yfir í leiknum en Sindramenn vöknuðu síðan til lífs og sigruðu leikinn að lokum. Emir Murtic og Kristinn “Krilli Krútt” Guðlaugsson skoruðu báðir tvö mörk.

Krilli Krútt hélt áfram að skora og er kominn með 4 mörk í deildinni.

Með þessum sigri náðu SIndramenn þriggja stiga forystu á toppnum og eiga síðan aftur heimaleik á fimmtudaginn næsta á Humarhátið.

Næsta síða »


Heimsóknir

  • 13,742

Dagatal

ágúst 2008
M Þ M F F L S
« júl    
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031